terreno til venda

Deila:


Óska eftir frekari upplýsingum


Nánari lýsing

Garðatorg eignamiðlun s. 545-0800:
Laxatúnga 117, miðju raðhús á einni hæð. Opið hús föstudaginn 14. maí frá kl 16.30-17.00
Um er að ræða staðsteypt 177,6 fm enda- raðhús á einni hæð. Húsið skilast fullbúið að utan og tilbúið til innréttinga á byggingarstigi 5, grófjöfnuð lóð. Að utan verða húsin einangruð og klædd að utan með álklæðningu. Gluggar eru ál/tré. Húsin eru byggð í samræmi við nútímaþarfir og kröfur. Afhending í okt. 2021 eða fyrr. Endahús er selt með fyrirvara um fjárögnun.
Það athugist að 3D myndir eru til að gefa vísbendingar af útliti og skipulagi hússins.
Linkur á teikningar. https://www.map.is/moso/@369187,411562,z5,0 ,skráið inn göguheiti Laxatúnga 117.
HÚSIN
Við hönnun hússins er lögð áhersla á að íbúar húsins njóti útsýnis og sólar, meðal annars með stórum gluggum, verönd, stór rennihurð úr borðstofu, þá er lögð áhersla á að sjónrænt myndi húsið heildasvip og að samræming sé í efnis og litavali. Húsið er skráð samkvæmt FMR: miðjuhús 178,8 fm. þar af er bílskúr 33,3 fermetrar. Innra skipulag: Anddyri, forstofa, stofa/ borðstofa, eldhús og þrjú svefnherbergi, baðherbergi og snyrting innaf hjónaherbergi, þvottahús og geymsla ásamt innbyggðum bílskúr.

Frágangur:
Burðarvirki: Sökklar, plötur, útveggir og berandi veggir hússins eru steinsteyptir og jarnbentir. Lagnir: Rör í rör lagnakerfi. Húsið er upphitað með gólfhita: Skil samkvæmt byggingarstigi 5 ÍST 51:2001
Raflagnir: Skil samkvæmt byggingarstigi 5 ÍST 51:2001
Útveggir: Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með litaðri álklæðningu og lítill hluti með harðvið. Litur álklæðningar er dökkgrár t.d Ral 7021. Viðarklæðning verður í innskoti við innganga t.d Lerki
Gluggar/hurðir og gler: Gluggar eru Ál/tré að innan og litað ál að utan, glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Bílskúrshurðin er ál, einangruð. Gluggar eru dökkgráir að utan t.d Ral 7021 og hvítir að innan t.d Ral 9010.
Þak: Þakvirkið er úr timbursperrum. Þakið er einangrað með þakull og rakavarið að innan með þolplasti, rafmagnsgrind, tilbúið fyrir loftaklæðningu: Skil samkvæmt byggingarstigi 5 ÍST 51:2001
Innveggir: Frágangur skv. byggingastigi 5, veggir eru frá 12 - 20cm að þykkt. . Til viðbótar við byggingastig 5 er búið að sparsla og grunna alla veggi. Sorpgeymsla á lóð er undanskilin.
Lóð: Grófjöfnuð lóð. Gert er ráð fyrir möguleika á heitum potti í lóð.

Verkáætlun: Húsið er uppsteypt. Stefnt er að framkvæmdum ljúki eigi síðar en okt. 2021.

Upplýsingar um eignina veita: Sigurður Tyrfingsson löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari s. 898-3708 eða sigurdur@gardatorg.is
Garðatorg eignamiðlun er staðsett á Garðatorgi 7 í Garðabæ.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

terreno til venda


Laxatunga, 117,, Mosfellsbær-MOS